ICELAND FOOD CENTRE
Þetta er heimildarmynd um fyrstu íslensku útrásina. Árið 1965 ákvað íslenska ríkið í félagi við fleiri aðila að opna veitingastaðinn Íslensku matvælastöðina í London. Staðurinn fékk nafnið Iceland Food Centre og átti að sýna ,,allt það besta sem Íslandi hafði uppá að bjóða.''
Heimildarmyndin er byggð á gögnum sem Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur fann í skjalasafni Fjármálaráðuneytisins.
Leikstjórn/handrit/klipping: Þorsteinn J.
Kvikmyndataka: Bjarni Felix Bjarnason
Hljóð: Hjörtur Svavarsson
Tónlist: Pétur Grétarsson
Samsetning/litaleiðrétting: Eiríkur Ingi Böðvarsson
Grafík: Freymar Þorbergsson
Þetta líf. Þetta líf ehf 2011